Í gær var alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Þennan dag voru þjóðinni  færð tvenn eftirtektarverð  og á sinn hátt dramatískt skilaboð sem þó voru óháð deginum sjálfum. Þau voru eftirtektarverð vegna þess að þau boðuðu annars vegar von en hins vegar vonbrigði. Þau voru dramatísk vegna þess að þau komu frá tveimur afburðakonum og snertu líf og störf þessara kvenna.

Boðskapur Evu Joly í Silfri Egils kveikti von í brjóstum margar Íslendinga. Þar kom fram að í heiminum í dag eru aðstæður hagstæðari en nokkru sinni til að rannsaka, sanna sekt eða sakleysi og mæta kröfunni um að  réttlætinu verði fullnægt  að því er varðar ábyrgðina á íslenska bankahruninu og afleiðingum þess fyrir þjóðina. Að fá notið ráðgjafar þessarar merku konu og þeirra sambanda sem hún hefur á alþjóðavettvangi eftir margra ára reynslu hennar af því að fást við meiriháttar alþjóðleg fjársvikamál verður án efa ómetanlegur stuðningur fyrir okkur Íslendinga.

Fram kom í máli Evu að samfélagssáttmálinn á Íslandi er í hættu ef réttlætinu verður ekki fullnægt. Félagsleg samstaða er fjöregg smáþjóðar sem býr langt frá öðrum þjóðum , smáþjóðar sem þarf að geta boðið borgurum sínum aðstæður og tækifæri eins og þau gerast best hjá nágrannaþjóðum. Félagsleg samstaða er undirstaða velferðarkerfis sem byggir á norrænni fyrirmynd um jöfnuð, öryggi og sameiginlega ábyrgð íbúanna.

Þótt boðskapur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hafi ekki komið þeim sem best til þekkja á óvart var hann samt högg.  Svo mikið högg að vonbrigði og samúð tóku hugann allan um stund. Hann er óþyrmileg áminning um það að lífið er harður húsbóndi. En þegar heilsan er annars vegar verðum við öll jafnvel hin einstaka baráttukona Ingibjörg Sólrún Gísladóttir að sýna auðmýkt og æðruleysi. Bati og endurhæfing þurfa að hafa sinn gang, sinn hraða, sína framvindu.

Pólitískur ferill Ingibjarga Sólrúnar hefur kennt henni sérstaklega að ekkert kemur af sjálfu sér. Pólitískur ferill hennar einkennist af einstökum baráttuvilja hennar, óttaleysi og trú á sigur að lokum.  Þannig verður það vonandi einnig nú að veikindi hennar eru aðeins tímabundin áminning til hennar um að staldra við um stund, ná heilsu sinni aftur og nýta tímann til að öðlast og meðtaka ný og áður óþekkt sjónarhorn á lífið og pólitíkina. Ekkert í pólitískum ferli Ingibjargar Sólrúnar hefur fram til þessa fengist ókeypis eða án baráttu. Lífið er harður skóli.

Senda á:
  • Facebook

Athugasemdir

Leave a Reply




Spam Protection by WP-SpamFree Plugin