Þessi Robert sem á að hafa komið sér út úr húsi hjá íslenskum ráðherra er Robert Wade. Hann hefur síðan 2005 haft uppi varnaðarorð til Íslendinga um að íslenska hagkerfið bæri öll merki þess að ofþensla í hagkerfinu væri í uppsiglingu sem endað gæti með efnahagslegu hruni og hrikalegum afleiðingum fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Þessi Robert hélt fyrirlestur í boði viðskiptaráðherra í lok ágúst 2007 þar sem hann af ótrúlegri nákvæmi sagði fyrir um horfurnar í heiminu og á Íslandi. Þessi Robert hélt áfram að vara Íslendinga við í viðtölum hjá Sigrúnu Davíðsdóttur í Speglinum á RÚV sem útvarpað var í tveimur þáttum í byrjun janúar 2008. Þessi sami Robert hélt áfram uppi varnaðarorðum í fyrirlestri sínum í Háskóla Íslands í júní 2008.  Og aftur þessi sami “naughty professor” frá London hélt áfram að gera íslenskum ráðamönnum gramt í geði með grein sinni  í Financial Times 1.júlí 2008 um að skuldadagar íslenska fjármálakerfisins væru í nánd.  Daginn eftir að neyðarlögin voru sett í byrjun október 2008 hvatti þessi Robert íslensku ríkisstjórnina til að kalla strax til teymi erlendra rannsóknarendurskoðenda til að fara í gegnum bókhald bankanna og gefa stjórnvöldum sem fyrst skýra mynd af stöðunni. Hinn 12.janúar sl. lýsti þessi sami Robert því yfir í Kastljósþætti sjónvarpsins að ekki væri allt búið enn, að  á tímabilinu mars til maí kæmi að öllum líkindum annar skellur.

Allt sem fram hefur komið í varnaðarorðum Roberts Wade hefur nú komið fram. Vaxtarbólan er sprungin , skuldirnar hrynja yfir heimilin og fyrirtækin í landinu eins og sprengjuregn og ríkisstjórnin er fallin. Fjárfestingabankinn Straumur, “the only man still standing”  um miðjan janúar á þessu ári þegar Robert varaði við áföllum á útmánuðum féll í gær, 9.mars.

Robert þessi er ekki skyggn svo mikið veit ég. Hann er rétt eins og aðrir sérfræðingar og fræðimenn sem standa af trúmennsku með faglegri sannfæringu sinni, eiga engra annarra hagsmuna að gæta en að miðla valdhöfum og almenningi í ríkjum heims af þekkingu sinni og líta á það sem skyldu sína að upplýsa og vara við ef þeim sýnist hætta vera á ferðum.

Ísland á því láni að fagna að eiga slíka fræðimenn, en íslenskur almenningur hefur búið við það ólán á undanförnum árum að valdhafar þeirra hafa hunsað slíka menn, jafnvel hæðst að þeim og útilokað í umræðunni. Íslenskir fræðimenn sem hafa “komið sér út úr húsi hjá íslenskum ráðherrum” eiga ekki góða daga.

Þegar grein Roberts Wade birtist í Financial Times í júlí síðastliðið sumar var sagt við mig, sem er unnusta Roberts búsett hér á Íslandi: “Robert hefur ekki gert þér neinn greiða með þessari grein.”  Þá var sagt við mig það sem stendur í yfirskrift þessa bloggs: “Robert er bara búinn að koma sér út úr húsi hjá ráðherranum.” Ég benti hins vegar á að Robert þessi sem þarf að hafna verkefnum í tugavís, er á eilífum ferðalögum um heiminn með fyrirlestra og fundi og er eftirsóttur viðmælandi á helstu fjölmiðlum og fréttastöðvum heimsins á ekkert undir  íslenskum ráðherrum.  Það sama á því miður ekki við um íslenska fræðimenn sem vilja starfa á Íslandi.

Senda á:
  • Facebook

Athugasemdir

Leave a Reply




Spam Protection by WP-SpamFree Plugin