Í gær skrifaði ég pistil á heimasíðu mína um auðlindina sem vex við nýtingu en hverfur ella. Í fyrrakvöld hitti ég hóp ungs fólks úr Félagi ungra jafnaðarmanna sem voru að skipulegga málefnavinnu sína og undirbúa Landsfund Samfylkingarinnar. Eftir að hafa hitt og spjallað við þetta unga fólk, skoðað vel heimasíðu þeirra www.politik.is og séð hvað þetta fólk er að segja og hvernig það hugsar finnst mér eins og ég hafi uppgötvað vel geymdan sjóð sem orðræða útrásartímabilsins og bankahrunið hafa ekki náð að granda. Ef svona fólk byggir Ísland í framtíðinni þarf ég engu að kvíða.

Ég á sjálf engin börn en ég greiði með ánægju skattana mína til að búa vel að börnum annarra og ungu fólki á Íslandi, vegna þess að ég vil búa í siðmenntuðu samfélagi með velupplýstu og duglegu fólki sem lætur sér annt um samfélagið og einstaklingana sem þar eru. Ég væri jafnvel nú á þessum erfiðu tímum tilbúin til að greiða hærri skatta ef það er tryggt að öllum börnum og ungmennum á Íslandi verði tryggð góð menntun og örugg heilbrigðisþjónusta. Þannig yrðu skattarnir mínir fjárfesting í framtíðinni, þolinmótt fé í hlutabréfum samfélagsins sem ekki falla í verði ef séð verður til þess að jöfnuður, frelsi og réttlæti ríki í samfélaginu.

Félagsskapur ungra jafnaðarmanna er gott dæmi um félagslegan auð (social capital) á Íslandi. Hann er dæmi um auðlindina sem bara vex og vex og vex því betur og því meira sem við nýtum hana. Stórkostleg auðlind það.

Senda á:
  • Facebook

Athugasemdir

Leave a Reply




Spam Protection by WP-SpamFree Plugin