Helstu áherslur

Nái ég kjöri mun ég leggja höfuðáherslu á eftirfarandi stefnumál:
a. Endurreisn efnahags- og atvinnulífsins er óhugsandi án náinnar alþjóðlegrar samvinnu.

Sjálfstæði lítilla þjóða getur verið betur borgið í samstarfi margra ríkja innan ríkjasambanda en í tvíhliða samvinnu tveggja þjóða. Hefja á strax að loknum kosningum undirbúning að aðildarviðræðum um inngöngu í Evrópusambandið með upptöku Evru og bera niðurstöður viðræðna undir þjóðina. Skýr skilaboð út í alþjóðasamfélagið um það hvert Ísland er að stefna gefur öðrum þjóðum vissu um það hvað hér tekur við og það mun hraða endurreisn. Endursérhæfing atvinnulífsins þarf að byggja á frumframleiðslugreinunum, nýtingu allra auðlinda lands og sjávar sem eiga að vera sameign þjóðarinnar, svo og á því hugviti sem hér hefur blómstrað hjá Íslendingum heima og heiman. Taka á kvótann heim og bjóða hann upp til leigu með reglulegu millibili og láta afraksturinn renna til þjóðarbúsins.

b. Varðveita aðgengi, jöfnuð og öryggi íslenska heilbrigðiskerfisins.

Hefja þarf skipulagða forgangsröðun verkefna innan heilbrigðisþjónustunnar með þeim hætti að aðgengi, jöfnuður og öryggi þjónustunnar séu tryggð og gæði hennar jöfn fyrir alla. Þetta er hægt á Íslandi vegna þess að rannsóknir benda til þess að draga megi úr kostnaði við þjónustuna án þess að árangur skerðist. Niðurskurður á umliðnum árum hefur verið í formi aðhalds og sparnaðar meðan kerfið í heild sinni hefur verið að vaxa. Skipulögð forgangsröðun verkefna þarf að gera ráð fyrir aðferðarfræði sem byggir á nánu samstarfi stjórnvalda við stofnanir, starfsfólk og notendur þjónustunnar. Hér má læra af öðrum þjóðum og finna samfélagslegar lausnir fyrir Ísland.

c. Stjórnsýsluumbætur.

Með stjórnsýsluumbótum á Íslandi þarf að tryggja að ráðningar í embætti og ábyrgðarstöður innan stjórnsýslunnar verði í höndum faglegrar skrifstofu innan stjórnarráðsins sem vinni undir eftirliti þingskipaðrar nefndar. Þessi skrifstofa beri jafnframt ábyrgð á því að stjórnsýslan/ráðuneytin hafi ávallt á að skipa þeirri þekkingu sem þarf til að tryggja getu og hæfni stjórnsýslunnar hverju sinni.

Það sem skiptir máli

Traust og gott samstarf þarf að vera milli þjóðar og þings. Þeir sem veljast til þingstarfa nú þurfa að gera sér grein fyrir því að þeir eru ekki að koma inn á vettvang stjórnmálanna til að vinna sér til vinsælda. Hér þarf stjórnmálamenn með kjark og þrautseigju; stjórnmálamenn sem með hæfilegri auðmýkt og skilningi á stöðu þjóðarinnar í samfélagi þjóðanna geta skapað trú á landið, þjóðina og stjórn þess bæði hér heima og erlendis.
Ég er svo lánsöm að búa að góðum undirstöðum, þökk sé íslensku mennta- og velferðarkerfi, víðtækri starfsreynslu og sýn sem líf og störf hér heima og erlendis hafa gefið mér. Ég vísa á nánari upplýsingar um mig í starfsferilskrá á heimasíðu minni www.sigurbjorg.is.