Um Sigurbjörgu
Sigurbjörg er fædd 1955 á Litlu Fellsöxl í Skilmannahreppi en hefur lengst af búið í Reykjavík. Hún var gift Sigursteini Gunnarssyni tannlækni sem lést í Reykjavík 1997. Frá 1998 til 2007 var hún við nám og störf í London. Unnusti hennar er Robert Hunter Wade prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics.
Sigurbjörg er með meistaragráðu og doktorsgráðu í stjórnsýslufræðum frá London School of Economics (LSE),og lauk námi í heilsuhagfræði við HÍ og félagsráðgjöf í Osló 1979. Hún starfaði sem félagsráðgjafi á ýmsum sviðum félags- og heilbrigðisþjónustu og hefur margra ára reynslu af stjórnun og stefnumótun innan opinberrar þjónustu á Íslandi, lengst af sem yfirmaður öldrunarþjónustu hjá Reykjavíkurborg. Sigurbjörg hefur stundað rannsóknir og kennslu í stjórnsýslufræðum við LSE, og starfað sem sérfræðilegur ráðgjafi í stefnumótun fyrir Alþjóðabankann í Washington og breska menntamálaráðuneytið. Í síðustu ríkisstjórn var hún stjórnsýsluráðgjafi fyrir utanríkisráðherra og heilbrigðisráðherra.
Sigurbjörg er mikil áhugakona um útivist og hreyfingu. Hún stundar sund, hjólreiðar og þó einna mest hlaup. Hún hefur hjólað langferðir niður um Evrópu, hlaupið tvö maraþon, í London 2003 og í Reykjavík 2004, 16 hálf maraþon og tugi 10k hlaup.
RSS